Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 726, 120. löggjafarþing 99. mál: lánastofnanir aðrar en viðskiptabankar og sparisjóðir (EES-reglur).
Lög nr. 20 28. mars 1996.
Ársreikningur lánastofnunar skal endurskoðaður af löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarstofu. Þó skal ársreikningur lánastofnunar, sem rekin er á ábyrgð ríkissjóðs eða ríkissjóður á að hálfu eða meira, endurskoðaður af Ríkisendurskoðun, sbr. lög um Ríkisendurskoðun. Ráðherra sá, sem fer með málefni lánastofnunar í eigu ríkissjóðs, staðfestir ársreikning hennar.
Um ársreikning og endurskoðun að öðru leyti, svo og samstæðureikningsskil, fer samkvæmt ákvæðum VII. kafla laga um viðskiptabanka og sparisjóði.
Um heimildir dótturfyrirtækja erlendra lánastofnana til starfsemi hér á landi fer samkvæmt ákvæðum XII. kafla laga um viðskiptabanka og sparisjóði.
Um heimildir dótturfyrirtækja innlendra lánastofnana til starfsemi erlendis fer samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga um viðskiptabanka og sparisjóði.
Nú gerist hérlend lánastofnun, sem stundar starfsemi í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, brotleg við lög þess ríkis, og lögbær yfirvöld þess ríkis grípa til ráðstafana sambærilegra þeim sem greinir í 1. mgr., og skal þá bankaeftirlitið aðstoða þarlend lögbær yfirvöld við samskipti þeirra við yfirstjórn hlutaðeigandi lánastofnunar.
Ákvæði 96. gr. A laga um viðskiptabanka og sparisjóði um rétt til að leita til dómstóla gilda einnig um lánastofnanir.
Fjáröflun stofnlánadeildarinnar er sem hér segir:
Starfsheimildir 8. gr. laga þessara koma til viðbótar heimildum sérlaga um starfandi lánastofnanir.
Ákvæði til bráðabirgða.
Víkjandi lán, sem lánastofnun hefur tekið fyrir gildistöku laga þessara og greiðast skal niður með afborgunum, er undanþegið ákvæði um endurgreiðslu víkjandi lána sem teljast til eiginfjárþáttar B í 3. málsl. 4. mgr. 54. gr. laga um viðskiptabanka og sparisjóði.
Þingskjal 726, 120. löggjafarþing 99. mál: lánastofnanir aðrar en viðskiptabankar og sparisjóðir (EES-reglur).
Lög nr. 20 28. mars 1996.
Lög um breytingu á lögum nr. 123/1993, um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Lokamálsliður 1. mgr. fellur brott.
- 2. mgr. orðast svo:
- Á eftir 3. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
2. gr.
Í stað orðanna „11. maí 1993“ í 5. gr. laganna kemur: 27. maí 1993.3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Ný málsgrein bætist við, svohljóðandi:
4. gr.
11. gr. laganna orðast svo:Ársreikningur lánastofnunar skal endurskoðaður af löggiltum endurskoðanda eða endurskoðunarstofu. Þó skal ársreikningur lánastofnunar, sem rekin er á ábyrgð ríkissjóðs eða ríkissjóður á að hálfu eða meira, endurskoðaður af Ríkisendurskoðun, sbr. lög um Ríkisendurskoðun. Ráðherra sá, sem fer með málefni lánastofnunar í eigu ríkissjóðs, staðfestir ársreikning hennar.
Um ársreikning og endurskoðun að öðru leyti, svo og samstæðureikningsskil, fer samkvæmt ákvæðum VII. kafla laga um viðskiptabanka og sparisjóði.
5. gr.
Við 13. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Um heimildir dótturfyrirtækja erlendra lánastofnana til starfsemi hér á landi fer samkvæmt ákvæðum XII. kafla laga um viðskiptabanka og sparisjóði.
6. gr.
Við 14. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Um heimildir dótturfyrirtækja innlendra lánastofnana til starfsemi erlendis fer samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga um viðskiptabanka og sparisjóði.
7. gr.
Við 17. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Nú gerist hérlend lánastofnun, sem stundar starfsemi í öðru ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, brotleg við lög þess ríkis, og lögbær yfirvöld þess ríkis grípa til ráðstafana sambærilegra þeim sem greinir í 1. mgr., og skal þá bankaeftirlitið aðstoða þarlend lögbær yfirvöld við samskipti þeirra við yfirstjórn hlutaðeigandi lánastofnunar.
8. gr.
Á eftir 18. gr. laganna kemur ný grein, svohljóðandi, og breytist greinatala samkvæmt því:Ákvæði 96. gr. A laga um viðskiptabanka og sparisjóði um rétt til að leita til dómstóla gilda einnig um lánastofnanir.
9. gr.
3. gr. laga nr. 48/1966, um Stofnlánadeild verslunarfyrirtækja (verslunarlánasjóð), orðast svo:Fjáröflun stofnlánadeildarinnar er sem hér segir:
- Fé sem fengið er með útgáfu vaxtabréfa, að fengnu samþykki Seðlabanka Íslands.
- Vextir.
- Fé sem fengið kann að vera að láni til endurlána.
10. gr.
Við ákvæði til bráðabirgða I í lögunum bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Starfsheimildir 8. gr. laga þessara koma til viðbótar heimildum sérlaga um starfandi lánastofnanir.
11. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi lög nr. 45/1972, um Stofnlánadeild samvinnufélaga, með áorðnum breytingum.Samþykkt á Alþingi 18. mars 1996.